Get Books

Animal Life

by Auður Ava Ólafsdóttir

 2,200

Category:
„Konu með mína starfsreynslu kemur fátt á óvart undir sólinni. Það er þá kannski helst maðurinn.“

Sjöunda skáldsaga Auðar Övu Ólafsdóttur gerist í vetrarmyrkri, rétt fyrir jól, þegar áður óþekkt lægð er í aðsigi. Á þriðju hæð við Ljósvallagötu býr ljósmóðir í íbúð sem hún erfði eftir einhleypa og barnlausa ömmusystur sína. Upp úr kassa undan Chiquita-banönum koma þrjú handrit sem ömmusystirin vann að, Dýralíf, rannsókn á því sem mannskepnan er fær um, Sannleikurinn um ljósið og Tilviljunin.

Dýralíf fjallar um leitina að mennskunni í myrkrinu en einnig um þá jörð sem við skiljum eftir fyrir næstu kynslóðir.

Auður Avahlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin (2016) og bókmennta-verðlaun Norðurlandaráðs (2018) fyrir Ör og hin virtu Médicis-verðlaun í Frakklandi fyrir Ungfrú Ísland (2019). Skáldsögur Auðar Övu hafa verið þýddar á 33 tungumál.

Reviews

There are no reviews yet.

Be the first to review “Animal Life

by Auður Ava Ólafsdóttir

Your email address will not be published. Required fields are marked *

Recently Viewed Products

Scroll to Top